Fræðsla fyrir foreldra
um börn og tækni.
Svar við þeim spurningum sem foreldrar spyrja hvað mest: um snjallsíma, tölvuleiki, samfélagsmiðla, skjátíma og netöryggi. Hagnýt fræðsla á íslensku. Fyrstu námskeið eru í undirbúningi.
Viðfangsefni Stafræns uppeldis
Skjátími og venjur
Er skjátíminn orðinn of mikill? Hvernig setjum við reglur sem börnin fylgja, og hvað segja rannsóknirnar?
Samfélagsmiðlar
Instagram, TikTok og Snapchat. Hvað eru þessir miðlar, hvernig virka þeir og hvað þarf foreldri að vita?
Tölvuleikir og leikjamenning
Roblox, Minecraft og aðrir leikir. Hvað er inni í þeim, hvernig virka kaup og hvernig setjum við reglur?
Símar og foreldraeftirlit
Hvenær á barn að fá síma? Hvaða stillingar þarf að vera með og hvernig virkar foreldraeftirlit?
Netöryggi og persónuvernd
Hvernig verndum við börnin á netinu, og hvað er raunverulegt vandamál á móti yfirdrætti?
Gervigreind
ChatGPT, gervigreind í skólanum og AI-myndir. Hvað þurfa foreldrar í raun að vita?
Af hverju Stafrænt uppeldi?
Foreldrar spyrja mig sömu spurninganna aftur og aftur: um Roblox, TikTok, skjátíma og snjallsíma. Góðar íslenskar heimildir vantaði.
Þess vegna varð Stafrænt Uppeldi til. Efni vefjarins byggir á þekkingu og áreiðanlegum heimildum, ekki á hagsmunum eða hræðsluboðskap.
Þórdís
Segðu mér hvað skiptir þig mestu máli
Skráðu netfang þitt og við sendum þér upplýsingar þegar námskeið opnar. Segðu mér hvaða efni þig langar helst að fá svör við.
Fræðsla fyrir skóla og foreldrafélög
Boðið er upp á fyrirlestra og vinnustofur fyrir foreldra, starfsfólk skóla, foreldrafélög og aðra hópa.
Viðfangsefni og fyrirkomulag eru ákveðin í samráði við hvern hóp, þannig að fræðslan taki mið af aldri barnanna og því sem skiptir þátttakendur mestu máli.